top of page

Skilmálar og friðhelgi

Þjónustuskilmálar

1. Skilgreining

Seljandi er Sveinn Elmar Magnússon, kennitala: 1203783689

 

2. Skilaréttur 

Kaupandi getur skilað vöru, keyptri af seljanda, innan 30 daga, valið nýja vöru eða fengið vöruna endurgreidda að fullu. Við skil á vöru þarf hún að vera í upprunalegu ástandi. Seljandi áskilur sér rétt til að sannreyna innan eðlilegra tímamarka að varan sé í lagi. Seljandi áskilur sér rétt til þess að koma í veg fyrir alla misnotkun á 30 daga skilarétti. 

GILDIR FYRIR ALLAR VÖRUR 

  • Reikningur er skilyrði fyrir vöruskilum.

  • Ef valið er að fá vöru endurgreidda er skilyrði að kaupnóta sé fyrir hendi eða að kaup séu skráð á kennitölu.

  • Varan þarf að vera í upprunalegu ástandi.

  • Æskilegt er að varan sé í upprunalegum umbúðum.

  • Endurgreiðsla getur lækkað ef verða breytingar til lækkunar á virðisaukaskatti eða öðrum opinberum álögum.

3. Pöntun

Pöntun er bindandi þegar hún er skráð á netþjón seljanda. Það gerist þegar kaupandi hefur staðfest pöntun. Seljandi er einnig skuldbundinn til að afgreiða pöntun kaupanda svo lengi sem hún er í samræmi við vöruúrval og verðlagningu. Kaupandi hefur rétt á að rifta kaupum samkvæmt lögum um neytendakaup, sjá nánar í grein 9.

Seljandi sendir kaupanda staðfestingu þegar pöntun er skráð, þó aðeins ef kaupandi hefur skráð netfang sitt við kaupin. Kaupanda er bent á að kynna sér gaumgæfilega pöntunarstaðfestingu, þegar hún berst, og ganga úr skugga um að hún sé í samræmi við fyrirhugaða pöntun.

Frávik frá pöntun og pöntunarstaðfestingu skal túlkað sem nýtt tilboð frá seljanda sem að hægt er að afþakka eða samþykkja. Kaupandi hefur einnig rétt til að láta upprunalega pöntun gilda svo lengi sem hún er í samræmi við það sem seljandi bauð. Vilji kaupandi breyta pöntun eftir að hafa fengið staðfestingu skal hann gera það samdægurs með því að senda tölvupóst með viðeigandi upplýsingum á netfangið villimadur@villimadur.com

4. Upplýsingar

Seljandi veitir upplýsingar um vörur eftir bestu vitund hverju sinni. Seljandi birtir allar upplýsingar með fyrirvara um bilanir, vírusa, prent-, birtingar- og innsláttarvillur í texta, verði og myndum. Ennfremur áskilur seljandi sér rétt til að aflýsa í heild eða að hluta til pöntun kaupanda ef varan er uppseld eða ef hann getur af einhverjum ástæðum ekki afhent tiltekna vöru.

5. Ve

Seljandi áskilur sér rétt til að hætta við pantanir, t.d. vegna rangra verðupplýsinga, og einnig að breyta verði eða hætta að bjóða upp á vörutegundir fyrirvaralaust. Áskilinn er réttur til að staðfesta pantanir símleiðis. Heildarkostnaður er tekinn fram áður en kaupandi staðfestir pöntun endanlega. Þar er tekinn fram allur kostnaður við pöntun, t.d. þjónustu, sendingu o.s.frv. Aðeins sértilfelli geta haft í för með sér aukakostnað eftir pöntunarstaðfestingu; sem dæmi má nefna bilanir, vírusa, prent-, birtingar- og innsláttarvillur í texta, verði og myndum.
Verð getur breyst án fyrirvara.

 

6. Afhending og seinkun

Afhending telst vera innan eðlilegra tímamarka frá útgáfudegi reiknings. Seljandi afhendir vörur einungis innan Íslands. Seljandi tilkynnir kaupanda áætlaðan afhendingardag með tölvupósti.

Pöntunum til einstaklinga er dreift af viðeigandi sendingarþjónustu og gilda afhendingar-, ábyrgðar- og flutningsskilmálar sendingaraðila um afhendingu vörunnar hverju sinni. Seljandi ber samkvæmt þessu enga ábyrgð á tjóni sem kann að verða á vöru í flutningi. Verði vara fyrir tjóni frá því að að hún er send frá Villimadur.com til viðtakanda er tjónið á ábyrgð kaupanda. Skemmdir eftir að vara hefur verið afhent er á ábyrgð kaupanda.

7. Yfirferð á vörum

Eftir að kaupandi hefur móttekið pöntunina þarf hann að kanna hvort hún sé í samræmi við pöntunarstaðfestinguna, hvort eitthvað hafi skemmst í flutningi og að allar vörur séu samkvæmt vörulýsingu og ógallaðar.
Skilmálar þessir gera ráð fyrir að kaupandi hafi lesið og kynnt sér eðli og innihald vörunnar.  Eðlilegur athugunartími viðskiptavinar telst vera innan 30 daga frá móttöku. Eftir 30 daga áskilur seljandi sér rétt til að sannreyna staðhæfingu kaupanda innan eðlilegra tímamarka áður en leyst er úr umkvörtunarefni kaupanda.

 

8. Réttur við galla eða vöntun

Ef varan er gölluð eða vantar eitthvað í vöruna er seljanda skylt að bjóða kaupanda nýja vöru, afslátt eða afturköllun kaupa. Það fer eftir atvikum hvaða leið er valin hverju sinni. Tilkynning á galla verður að berast munnlega eða skriflega. Mælt er með að tilkynningin berist innan 7 daga frá því að galli uppgötvast. Vegna skráningargildis er mælt með að að kaupandi sendi tölvupóst um gallann og geymi afrit. Seljandi sendir staðfestingu til baka um móttöku tölvupóstsins. Réttur neytanda (með neytanda er átt við einstakling utan atvinnustarfsemi) til að fá galla bættan er í samræmi við neytendakaupalög nr. 48/2003. Seljandi áskilur sér rétt til að sannreyna innan eðlilegra tímamarka að varan sé gölluð. 

 

9. Ábyrgð

Ábyrgðir seljanda hafa ekki í för með sér takmarkanir á rétti sem kveðið er á um í lögum um neytendakaup. Ábyrgð vegna galla á vöru er í samræmi við neytendakaupalög 48/2003 og miðast við  kaupdagsetningu til einstaklinga. Ef um ræðir sölu á vöru til fyrirtækis (atvinnustarfsemi) er ábyrgð á galla 1 ár frá kaupdagsetningu samkvæmt lögum um lausafjárkaup lög nr 50/2000.

Ábyrgð er ekki staðfest nema að kaupnótu sé framvísað. Ábyrgðin nær ekki til eðlilegs slits eða notkunnar.

Ábyrgð fellur úr gildi ef varan hefur verið illa viðhaldið og hefur augljóslega skemmst  vegna vanrækslu eiganda. Ábyrgðin fellur einnig niður ef rekja má notkun til illrar eða rangrar meðferðar og er kaupanda bent á að kynna sér gaumgæfilega leiðbeiningar um umhirðu og viðhald vörunnar.

Seljandi er ekki skuldbundinn til að taka þátt í gefa afslætti, skipta út vöru o.s.frv. eftir að ábyrgðartíma lýkur. Seljandi áskilur sér rétt til að sannreyna innan eðlilegra tímamarka að galli heyri undir ábyrgðarskilmála. Ef til úrlausnar ábyrgðar kemur, er seljanda skylt að bjóða kaupanda nýja vöru, afslátt eða afturköllun kaupa. Það fer eftir atvikum hvaða leið er valin hverju sinni. 

 

10. Persónuvernd

Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar þær upplýsingar sem kaupandi gefur upp í tengslum við viðskiptin. Upplýsingar verða ekki afhentar þriðja aðila undir neinum kringumstæðum.  Kaupanda gefst hins vegar kostur á að fá send tilboð í tölvupósti og mun seljandi þá aðeins nota þær upplýsingar sem til þess þarf, t.d. póstfang. 

 

11. Eignarréttur

Seldar vörur eru eign seljanda þar til kaupverð er að fullu greitt.
Reikningsviðskipti eða önnur lánaform afnema ekki eignarétt seljanda fyrr en full greiðsla hefur borist. 

 

12. Úrlausn vafamála

Ávallt skal reyna að leysa öll mál á sem einfaldastan hátt. Ef það er ekki mögulegt er hægt að bera málið undir Kærunefnd þjónustu og lausafjárkaupa sem hýst er af Neytendastofu. Sem síðasta úrræði er hægt að fara með málið fyrir dómstóla. Það skal gera í íslenskri lögsögu og í lögsagnarumdæmi seljanda.

13. Skattar og gjöld

Öll verð í netversluninni eru með virðisaukaskatti og reikningar eru gefnir út með virðisaukaskatti.

Friðhelgi

Við virðum friðhelgi allra sem heimsækja þessa vefsíðu. Við seljum ekki né leigjum þínar persónulegu upplýsingar til þriðja aðila. Villimadur.com meðhöndlar persónuupplýsingar kaupanda vegna notkunar á vefsvæðinu villimadur.com í samræmi við gildandi lög og reglur um meðferð persónuupplýsinga á hverjum tíma.

Persónuupplýsingar eru geymdar í gagnagrunni Fotomax. Enginn nema eigandi vefsins villimadur.com hefur aðgang að þeim. Við kaup á vöru eða þjónustu veitir kaupandi fotomax samþykki sitt til að safna og vinna úr persónuupplýsingum úr gagnagrunni fyrirtækisins. Úrvinnsla gagna fer fram svo lengi sem kaupandi lýsir ekki andstöðu sinni við meðferð upplýsinganna. Ef kaupandi óskar eftir að koma athugasemdum um meðhöndlun persónuupplýsinga, skal athugasemdum komið til Villimadur.com í tölvupósti á villimadur@villimadur.com eða bréflega á heimilisfang Villimadur.com í Marteinslaug 10, 113 Reykjavík. Upplýsingum um kaupanda verður þá eytt úr gagnagrunninum og kaupandi upplýstur um það sérstaklega.

bottom of page